brú milli útgerðar og fiskvinnslu
Allur aflinn er í góðum höndum hjá starfsfólki FMÍS. Við leggjum áherslu á greiðvikni og persónulega þjónustu, bæði á bryggjunni, á gólfinu hjá okkur og þegar þú hefur samband. Markmiðið er að allar fisktegundir seljist á hæsta mögulegu verði.
Við sjáum til þess að keyptur afli sé aðgengilegur strax að loknu uppboði, með áreiðanlegum upplýsingum um stærð, ástand og uppruna fisksins. Við leysum fljótt og vel úr málum ef nauðsynlegt reynist að meðhöndla fiskinn að loknu uppboði eða gera einhverjar leiðréttingar.
Fiskmarkaður Íslands er burðarás í atvinnulífi á þeim 10 stöðum þar sem hann starfar. Fyrir tilstilli FMÍS er auðveldara að koma aflanum í verð og starfsstöðvarnar leiða af sér ýmis önnur umsvif. FMÍS leggur áherslu á að hafa góð áhrif á umhverfi, efnahag og samfélag þar sem hann starfar.