Bankaábyrgð
FMÍS krefst bankaábyrgðar af öllum kaupendum svo skilvís greiðsla til seljenda er ávallt tryggð.
Rekjanleiki
Skráning á númerum fiskkara tryggir að þótt búið sé að afhenda fisk að loknu uppboði má rekja hann til bátsins sem honum var landað úr.
Viðbrögð við frávikum
Fiskur er vandmeðfarinn og því hætta á að upp komi atvik sem krefjast leiðréttingar. FMÍS leitast við að ljúka öllum slíkum málum á sanngjarnan og fljótlegan hátt. Eðlilegt er að hefja slíkt ferli í athugasemdakerfi Reiknistofu fiskmarkaða, sjá hér.