Höfuðstöðvar í Ólafsvík
Fiskmarkaður Íslands hf. sem varð til við sameiningu Fiskmarkaðar Breiðafjarðar hf. og Faxamarkaðarins hf., er stærsti fiskmarkaðurinn á Íslandi og fer umþb. 50% af öllu seldu magni á íslenskum fiskmörkuðum gegnum Fiskmarkað Íslands hf. Afgreiðslustaðir Fiskmarkaðs Íslands hf. eru alls 8 talsins, í Þorlákshöfn, Reykjavík, Akranesi, Arnarstapa, Rifi, Ólafsvík, Grundarfirði Stykkishólmi og Skagaströnd. Skrifstofa félagsins er í Ólafsvík, sem jafnframt er stærsti einstaki móttökustaðurinn.

Meirihluti þess afla sem seldur er hjá Fiskmarkaði Íslands hf. er af dagróðrabátum og er fiskurinn seldur áður en að honum er landað. Því er ferskleiki fisksins og gæði mikil. Við löndun er þess gætt að fiskurinn sé vel ísaður og að honum sé raðað í einangruð fiskker, jafnframt er hitastig fisksins mælt og það skráð.

Eftir að fiskinum hefur verið landað er hann flokkaður og veginn hann ísaður að nýju og síðan er hann afgreiddur til kaupenda, yfirleitt að kveldi veiðidags. Uppboð fara fram á hádegi alla daga, og geta kaupendur mætt til uppboðs á 30 mismunandi stöðum vítt og breitt um landið. Um mitt ár 2003 var tekið í notkun nýtt uppboðskerfi “Fisknet”. Fer það uppboð fram á internetinu og geta kaupendur því tengst uppboðskerfinu frá tölvum sínum hvar sem er í heiminum.



Á Fiskmarkaði Íslands hf. hefur verið sett upp gæðastjórnunarkerfi sem byggir á áhættugreiningu HACCP.

Gæðakerfið virkar þannig að sett hefur verið upp hreinlætiseftirlit, þrifaáætlanir, eftirlit með hráefnisgæðum og meindýraeftirlit.

Fylgst er með öllum þessum þáttum daglega og allt skráð samkvæmt gæðahandbók.

Skjalastýring:

Öll skjöl er varða vigtun eru geymd í minnst 2 ár, og eru í vörslu útibússtjóra á hverjum stað.

Önnur skjöl er varða bókhald eru í vörslu skrifstofustjóra og eru geymd í minnst 5 ár.

Kröfur/ kvartanir:

Krafa vegna gæða vöru sem afgreidd hefur verið þarf að berast innan 24 tíma frá afgreiðslu og er krafan færð á kröfutilkynningarblað.

Haft er samband við kaupanda og seljanda, þegar það á við, til að ræða kröfuna og ákveða hvaða ráðstafanir skulu gerðar. Niðurstaðan og þær aðgerðir sem eru samþykktar,eru skráðar á kröfutilkynningarblaðið og geymdar.

Rekjanleiki afurða:

Við móttöku er afli hvers báts tekinn og vigtaður eftir tegundum og skráður á þar til gerð vigtarblöð og fær hver stæða sitt uppboðsnúmer.

Fyrir uppboð er afli hvers báts skráður á uppboðslista með nafni báts, númeri stæðu og magni.

Eftir uppboð eru prentaðir út afgreiðsluseðlar á hvern kaupanda og á honum er skráð stæðunúmer, bátsnafn, verð og magn, síðan við afgreiðslu er handskráð inn á afgreiðsluseðilinn karanúmer í viðkomandi stæðu.

Afrit af afgreiðsluseðli fylgir afurðinni til kaupanda, frumritið er geymt hjá FMI.

Allar skráningar eru varðveittar í minnst tvö ár.

Ársskýrslur Fiskmarkaðar Íslands hf.


 
Fiskmarkaður Íslands - Norðurtanga - 355 Ólafsvík - Sími 430 3700 - fmis@fmis.is