Image1\

SELJA hjá FMÍS

 

Allur aflinn er í góðum höndum hjá starfsfólki FMÍS. Við leggjum áherslu á greiðvikni og persónulega þjónustu, bæði á bryggjunni, á gólfinu hjá okkur og þegar þú hefur samband. Markmiðið er að allar fisktegundir seljist á hæsta mögulegu verði.

KAUPA hjá FMÍS

 

Við sjáum til þess að keyptur afli sé aðgengilegur strax að loknu uppboði, með áreiðanlegum upplýsingum um stærð, ástand og uppruna fisksins. Við leysum fljótt og vel úr málum ef nauðsynlegt reynist að meðhöndla fiskinn að loknu uppboði eða gera einhverjar leiðréttingar.

Samfélagið og FMÍS

 

Fiskmarkaður Íslands er burðarás í atvinnulífi á þeim 9 stöðum þar sem hann starfar. Fyrir tilstilli FMÍS er auðveldara að koma aflanum í verð og starfsstöðvarnar leiða af sér ýmis önnur umsvif. FMÍS leggur áherslu á að hafa góð áhrif á umhverfi, efnahag og samfélag þar sem hann starfar.
 

Með því að smella á nöfn staðanna hér fyrir neðan opnast upplýsingar um framboð á þessum stöðum í nýjum flipa. Upplýsingarnar eru á vef Reiknistofu Fiskmarkaða.

Akranes

Reykjavík

Skagaströnd

Snæfellsnes

Þorlákshöfn

 
 
 
 
 

Fiskmarkaður Íslands hf - Norðurtanga - 355 Ólafsvík - Sími 430 3700 - fmis@fmis.is