Tilkynning frá Umbúðamiðlun

Hér með áréttar Umbúðamiðlun ehf. eftirfarandi reglur Umbúðamiðlunar ehf. um meðferð fiskikara fyrirtækisins.

Engum er heimil notkun karanna nema samkvæmt samningi við Umbúðamiðlun ehf. og/eða sem viðskiptamaður fiskmarkaðanna á Íslandi. Allir fiskmarkaðir á Íslandi hafa samkvæmt samningum við Umbúðamiðlun ehf. heimildir til meðferðar fiskikara Umbúðamiðlunar ehf. og afhendingar þeirra til viðskiptamanna sinna. Öðrum aðilum er óheimil notkun eða meferð fiskikaranna.

Samkvæmt reglum Umbúðamiðlunar ehf., samningum og venjum um meðferð fiskikaranna skal, þegar fiskur er keyptur á fiskmarkaði, fluttur í beinum viðskiptum milli staða innanlands og/eða fluttur í gámum til útlanda, skila sama fjölda kara á lestunarstað.

Umbúðamiðlun ehf. hefur miðað við að eigandi fisksins og viðkomandi flutningsaðili gera með sér samning um skil fiskikaranna á lestunarstað. Skil skulu jafnframt vera í samráði við Umbúðamiðlun ehf. á hverjum tíma.


 
Fiskmarkaður Íslands - Norðurtanga - 355 Ólafsvík - Sími 430 3700 - fmis@fmis.is