Fiskmarkaður Íslands - Niðurstöður yfirtökutilboðs FMB í Fiskmarkað Íslands
Yfirtökutilboð FMB ehf. til hluthafa í Fiskmarkaði Íslands hf. rann út kl. 16.00, laugardaginn 27. maí 2006. Eignarhlutur FMB ehf. í Fiskmarkaði Íslands hf. nemur að yfirtökutímanum liðnum 63.737.829 kr. að nafnverði eða 89,6247 % af heildarhlutafé Fiskmarkaðs Íslands.
Hluthafar sem samþykkt hafa tilboðið fá greitt með reiðufé og fer greiðslan fram eigi síðar en 5 dögum eftir að tilboðstímabili lýkur, enda séu upplýsingar sem koma frá hluthöfum réttar og fullnægjandi.
VBS Fjárfestingarbanki hf. ábyrgist reiðufjárgreiðslu FMB ehf. á yfirteknum hlutum, eins og nánar er kveðið á um í 40. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 33/2003.
Nánari upplýsingar veitir:
Fannar Baldursson, sími 430-3708
Stjórn Fiskmarkaðs Íslands hf. mun fara fram á við stjórn Kauphallar Íslands að bréf félagsins verði afskráð úr Kauphöll Íslands.