|
Jens segir ennfremur að allur þorskur af Agli SH fari í verkun í fiskvinnsluhúsinu. „Við höfum líka keypt á fiskmarkaðinum og við seljum saltfiskinn í gegnum fyrirtækið Bacco.“
„Við höfum gert tilraunir með að senda skarkola til Spánar með flugi og hefur sú tilraun lofað góðu en verðið á fiskmarkaðinum hér heima fyrir kolann er ekki hátt sem stendur í kringum 150 til 160 krónur á kílóið en það þyrfti helst að vera um 200 krónurnar,“ bætir Jens við.
Jens segir að áætlað sé að viðbyggingin verði tekin í notkun fyrir áramót og sé á áætlun að bæta við mannskap í vinnsluna. Kostnaðaráætlun við bygginguna sé um 80 milljónir. „Það þýðir ekkert annað en að vera bjartsýnn á framtíðina í íslenskum sjávarútvegi, nema við séum svona vitlaus,“ segir Jens og skellihlær.
Frétt af snb.is
|