|
,,Fyrst það var hægt að auka loðnukvótann þá er ekkert úr vegi að auka þorskvótann líka. Fiskurinn sem við höfum verið að fá er mjög vænn og fallegur,“ bætir Pétur við. Hann segir að þorski yfir fjórum kílóum sé landað í Þórsnesi í Stykkishólmi en að smærri fiskurinn og aukaafli fari á markað. Aðspurður um kvótastöðu Bárðar segir Pétur hana vera ágæta. “Við höfum bæði leigt til okkar þorsk og skipt á tegundum. Núna eigum við eftir að veiða 200 tonn af þorski.“
Áhöfnin á Bárði tók upp netin á föstudag þar sem árlegt hrygningarstopp gekk í gildi og stendur fram til þann 21. apríl. Pétur og áhöfn hans mun taka kærkomið frí þangað til veiðar hefjast aftur að loknu fæðingarorlofi þorsksins. |