Kóngur einn dag

 

 

Feðgarnir Magnús Birgisson og Birgir Vilhjálmsson fengu þessa risalúðu á línuna hjá sér þegar þeir voru að veiðum á Gísla SH laugardaginn 5. apríl s.l.

Lúðan mældist 240 sentimetrar að lengd og þyngdin var 140 kg.

það er ekki á hverjum degi sem svona stórar flyðrur veiðast og því eðlilegt að mönnum líði eins og kóngum eftir að hafa landað þeim.

Lúðan getur orðið allt að 35-40 ára gömul, hún er stærsta tegund flatfiska og getur orðið allt að 3 - 4 m löng. Stærsta lúðan sem veiðst hefur við Ísland var 365 cm og 266 kg.

frétt frá snb.is

 
Fiskmarkaður Íslands - Norðurtanga - 355 Ólafsvík - Sími 430 3700 - fmis@fmis.is