Image1\

SELJA hjá FMÍS

 

Allur aflinn er í góðum höndum hjá starfsfólki FMÍS. Við leggjum áherslu á greiðvikni og persónulega þjónustu, bæði á bryggjunni, á gólfinu hjá okkur og þegar þú hefur samband. Markmiðið er að allar fisktegundir seljist á hæsta mögulegu verði.

KAUPA hjá FMÍS

 

Við sjáum til þess að keyptur afli sé aðgengilegur strax að loknu uppboði, með áreiðanlegum upplýsingum um stærð, ástand og uppruna fisksins. Við leysum fljótt og vel úr málum ef nauðsynlegt reynist að meðhöndla fiskinn að loknu uppboði eða gera einhverjar leiðréttingar.

Samfélagið og FMÍS

 

Fiskmarkaður Íslands er burðarás í atvinnulífi á þeim 9 stöðum þar sem hann starfar. Fyrir tilstilli FMÍS er auðveldara að koma aflanum í verð og starfsstöðvarnar leiða af sér ýmis önnur umsvif. FMÍS leggur áherslu á að hafa góð áhrif á umhverfi, efnahag og samfélag þar sem hann starfar.
 

Fiskmarkaður Íslands er stærsti fiskmarkaður á Íslandi og fer u.þ.b. helmingur af öllu seldu magni á íslenskum fiskmörkuðum gegnum Fiskmarkað Íslands. 

Félagið starfar á 9 stöðum: Akranesi, Arnarstapa, Grundarfirði, Ólafsvík, Reykjavík, Rifi, Skagaströnd, Stykkishólmi og Þorlákshöfn. Aðalskrifstofa fyrirtæksins er í Ólafsvík en þar er jafnframt stærsti móttökustaðurinn. Einnig rekur félagið öfluga flokkunar- og slægingarþjónustu á Rifi.

Meirihluti þess afla sem seldur er hjá Fiskmarkaði Íslands er af dagróðrabátum og er fiskurinn þá oftast seldur áður en honum er landað. Það tryggir kaupandanum góðan og ferskan fisk. Við löndun er þess gætt að fiskurinn sé vel ísaður og að honum sé raðað í einangruð fiskker, jafnframt er hitastig fisksins mælt og það skráð.

Uppboð fara fram á netinu í uppboðskerfi Reiknistofu fiskmarkaða kl 13:00 alla virka daga. Kaupendur geta því tengst uppboðskerfinu frá tölvum sínum hvar sem er í heiminum.

 
 
 
 
 

Fiskmarkaður Íslands hf - Norðurtanga - 355 Ólafsvík - Sími 430 3700 - fmis@fmis.is