Saxhamar kveður
Saxhamar SH 50 (1074) hefur verið seldur og fór úr höfn nú um helgina, það er kanski ekki frásögum færandi að hann skuli vera seldur en Saxhamar var fyrstur til að selja á uppboði hjá Fiskmarkaði Breiðafjarðar í jan 1992 . Útnes sem gerði bátinn út hefur haldið tryggð við markaðinn í 15.ár og Saxhamar er því samofinn sögu markaðsins. Útnes festi kaup á glæsilegu skipi og lagði þeim gamla, hann fer nú í Norðursjóinn og mun þar vera notaður til að þjónusta olíuborpalla og annað því tengt.