Markaðsmót í skák
Fiskmarkaður Íslands styrkti nú á dögunum alþóðlegt skákmót sem haldið var af taflfélaginu Helli Reykjavík.
Mótið var haldið dagana 20-27 júni og tókst í alla staði vel samkvæmt upplysingum frá mótstjórn. Framkvæmdastjóri mótsins var Björn Þorfinnsson, skáksstjórar voru Gunnar Björnsson, Vigfús Vigfússon, Davíð Ólafsson og Andri Grétarsson.
Bragi Þorfinnsson vann mótið og egyptinn Walaa Sarwat varð annar og þriðji varð Björn Þorfinnsson bróðir Braga.
Fiskmarkaður Íslands þakkar Hellissmönnum fyrir góð orð í okkar garð á heimasíðu sinni.
<
http://hellir.blog.is/>