Gott veður
Það sem af er febrúar er búið að selja tæp 1600 tonn fyrir um 270.milljónir á keðju FMÍ. Gott veður hefur verið við Breiðafjörð undan farna viku og hafa smábátar róið daglega, langt er síðan það hefur skeð enda hefur tíðin verið frekar leiðinleg í vetur. Meðalverðið það sem af er febrúar er 171 kr en í fyrra var það 114.kr þetta er 50% hækkun á milli ára.