FMB ehf. kaupir 83% hlut í Fiskmarkaði Íslands hf.
FMB ehf. hefur fest kaup á tæpum 83% hlut í Fiskmarkaði Íslands hf. Félagið mun leggja fram yfirtökutilboð til hluthafa Fiskmarkaðs Íslands hf. í samræmi við ákvæði VI. sbr. VII. kafla laga nr. 33/2003 um verðbréfaviðskipti.
Hluthöfum í Fiskmarkaði Íslands hf. verður boðið að selja hluti sína í félaginu á genginu 7 samkvæmt nánari skilmálum í tilboðsyfirliti sem birt verður innan fjögurra vikna. FMB ehf. hyggst með kaupum sínum á hlutum í Fiskmarkaði Íslands hf. styðja stjórnendur félagsins við að framfylgja þeirri stefnu sem þeir hafa mótað og fylgt á undanförnum árum. Hluthafar í FMB ehf. eru 75 talsins.