kvótinn

Alger nauðsyn að auka kvótann

Myndina tók Alfons
 „Hér hefur verið mjög gott fiskirí í dragnótina allt frá áramótum. Þorskveiðin hefur ekki verið betri síðan ég byrjaði á dragnót fyrir 12 árum,“ sagði Hilmar Hauksson, skipstjóri á Gunnari Bjarnasyni SH, í samtali við Fiskifréttir. Hilmar sagði að Breiðafjörðurinn væri fullur af fiski, hvort sem um væri að ræða                            

þorsk eða ýsu. Síld væri um allt og mikil loðna hefði einnig gengið inn í fjörðinn. Hratt hefur gengið á þorskkvótann vegna þess hve veiðin hefur verið góð.

 

„Síðustu þrjár vikurnar höfum við aðeins róið einu sinni í viku. Svona rétt til þess að fá okkur frískt loft. Við höfum leigt til okkar ýsu og reynum að forðast þorskinn. Flestir bátanna eru í vandræðum og því er alger nauðsyn að auka þorskkvótann um 30-50 þúsund tonn,“ sagði

Hilmar. Gunnar Bjarnason SH landaði rúmum 20 tonnum í Ólafsvík í vikunni. Aflinn var til helminga þorskur og ýsa og fékkst hann í 4 holum. Á myndinni hér að ofan eru þeir Stefán Kristófersson og Matthías Páll Gunnarsson að landa vænum þorski úr bátnum. 

 

Frétt úr Fiskifréttum



 
Fiskmarkaður Íslands - Norðurtanga - 355 Ólafsvík - Sími 430 3700 - fmis@fmis.is