Image1\

SELJA hjá FMÍS

 

Allur aflinn er í góðum höndum hjá starfsfólki FMÍS. Við leggjum áherslu á greiðvikni og persónulega þjónustu, bæði á bryggjunni, á gólfinu hjá okkur og þegar þú hefur samband. Markmiðið er að allar fisktegundir seljist á hæsta mögulegu verði.

KAUPA hjá FMÍS

 

Við sjáum til þess að keyptur afli sé aðgengilegur strax að loknu uppboði, með áreiðanlegum upplýsingum um stærð, ástand og uppruna fisksins. Við leysum fljótt og vel úr málum ef nauðsynlegt reynist að meðhöndla fiskinn að loknu uppboði eða gera einhverjar leiðréttingar.

Samfélagið og FMÍS

 

Fiskmarkaður Íslands er burðarás í atvinnulífi á þeim 9 stöðum þar sem hann starfar. Fyrir tilstilli FMÍS er auðveldara að koma aflanum í verð og starfsstöðvarnar leiða af sér ýmis önnur umsvif. FMÍS leggur áherslu á að hafa góð áhrif á umhverfi, efnahag og samfélag þar sem hann starfar.
 

Fiskmarkaður Íslands er brú á milli útgerðar og fiskvinnslu. Hann miðlar fiski frá seljendum til kaupenda og annast alla umsýslu við þá yfirfærslu. Fiskmarkaðurinn vinnur bæði fyrir kaupendur og seljendur og veitir þeim margvíslega þjónustu í tengslum við meðhöndlun fisksins.

Fiskmarkaður Íslands stuðlar að jafnvægi og stöðugleika í íslenskum sjávarútvegi með því að uppfylla ólíkar þarfir viðskiptavina sinna. Hann tryggir að útgerðir geti selt veiddan fisk og að vinnsluaðilar fái fisk  til vinnslu, á öruggan og hagkvæman hátt.  Fiskmarkaðurinn treystir með því starfsskilyrði sjávarútvegs vítt og breitt um landið og hefur mikil samfélagsleg áhrif.

Fiskmarkaður Íslands leggur áherslu á gæði, sem felast m.a. í vönduðum vinnubrögðum við meðhöndlun fisks og upplýsingagjöf. Starfsemi fyrirtækisins byggist á fyrsta flokks þjónustu og traustu sambandi við viðskiptavinina.

 
 
 
 
 

Fiskmarkaður Íslands hf - Norðurtanga - 355 Ólafsvík - Sími 430 3700 - fmis@fmis.is