Niðurstöður aðalfundar 26. maí
Þær tillögur sem lagðar voru fyrir aðalfund Fiskmarkað Íslands hf. föstudaginn 26. maíl 2006 voru samþykktar samhljóða.
Eftirfarandi tillögur voru lagðar fyrir fundinn:
Ákvörðun um meðferð hagnaðar félagsins:
1. Aðalfundur Fiskmarkaðs Íslands hf. haldinn 26. maí 2006 samþykkir að greiddur verði út 100% arður af nafnvirði hlutafjár miðað við stöðu hlutafjár í lok dags 26.05.06. Skal arðurinn greiddur út þann 15.06.06. Kjör stjórnar:
2. Ný stjórn var kjörin, í henni sitja:
Páll Ingólfsson formaður Guðmundur Smári Guðmundsson varaformaður, Hjálmar Kristjánsson, Sævar Friðþjófsson, Pétur Pétursson og til vara: Sigurður Sigurbergsson, Bárður Tryggvason
Endurskoðunarfélag: Endurskoðunarfélag var kosið Deloitte hf.
Stjórn félagsins var veitt heimild til kaupa á eigin hlutum. Stjórn er heimilt að kaupa allt að 10% af nafnverði hlutafjár ein og það er á hverjum tíma. Má kaupverðið vera allt að 15% yfir meðalkaupgengi bréfanna í Kauphöll Íslands hf. liðnar tvær vikur á undan kaupum. Ekki er sett lágmark á heimild þessa, hvorki hvað varðar kaupverð né stærð hlutar sem keyptur er hverju sinni.
Þóknun til stjórnarmanna og endurskoðenda:
Þóknun til stjórnarmanna vegna ársins 2005 var ákveðin kr. 40.000 kr. á mánuði og að formaður fái tvöfalda þessa upphæð.
Samþykkti fundurinn að endurskoðendum verði greitt skv. reikningi.