14.5.2010
Steinunn yfir 1000 tonn
|
Góð aflabrögð |
|
Áhöfnin á Steinunni SH náði þeim áfanga um mánaðarmótin að vera búnir að veiða 1000 tonn á fiskveiðiárinu. Í tilefni af þessum áfanga var bökuð terta sem áhöfnin gæddi sér á í byrjun síðustu viku. Eitthvað hefur tertan farið vel í mannskapinn því að vikuna 3. til 9. maí veiddu þeir rúmlega 120 tonn til viðbótar.
|
|
Samtals var landað 1.223 tonnum í höfnum Snæfellsbæjar í síðustu viku og af því voru 298 tonn á handfæri, skakbátum er að fjölga mikið í kringum Snæfellsnes samfara mikilli fiskgengd og sem dæmi má nefna að af þessum 298 tonnum sem landað var af skakbátum var 136 tonnum landað á Arnarstapa.
JÓ |
|
Frétt úr Jökli 12.5.2010 |
|
|
11.5.2010
Tilkynning
TILKYNNING
Frá og með 29.maí til og með 29.ágúst 2010 lokað um helgar hjá Fiskmarkaði Íslands.
Útibúin sem loka þessar helgar eru Rif,Ólafsvík, Arnarstapi,Grundarfjörður, Stykkishólmur, Akranes og Reykjavík.
Byrjað verður að landa kl.8 að morgni mánudags á þessu tímabili.
Við vonum að þetta valdi ekki viðskiptavinum okkar óþægindum.
Helgar sem lokað verður.
29-30 maí
5-6, 12-13, 19-20, 26-27 júní
3-4, 10-11, 17-18, 24-25 júlí
31.júlí til 2 ágúst, verslunarmannahelgin, 7-8, 14-15, 21-22, 28-29 ágúst
Starfsfólk fiskmarkaðs Íslands.
21.4.2010
Gleðilegt sumar
Nú þegar hitna fer í veðri, viljum við minna á að aldrei er tekið of mikið af ís með sér á sjó.
Þvoið fiskinn vel og kælið hann sem allra fyrst.
Betri umgengni betra verð.
Starfsfólk Fiskmarkaðs ísland